12. október 2006 klukkan 16:45
Loskins bloggar maður ;) er kominn með nýja vinnu á Solid hár sem er ein heitasta hárgreiðslustofan í dag :) er á samning hjá þeim ;)Fólkið sem vinnur hér er líka svo rosalega ferskt ;) Það er allt gott að frétta annars af mér..Svo er bara djamm um helgina ;) Rock on fucKers ;) Gay ball á laugardaginn :) Og bara brjáááálað fjör..Comment eru vel þeginn :)
03. júlí 2006 klukkan 00:08
Já kæra fólk :) skelltum okkur margir hafnfirðingar á færeyska daga í Ólafsvík :) og það var æðii!!
Djammað og djúsað og mikið um gleði og fjör :D
Kom heim fyrir ca. 30mín og ég er kominn með 39° hita og kvef og hálsbólgu :(
En samt takk allir fyrir ÆÐISLEGA helgi :D:D
21. júní 2006 klukkan 00:07
jább þá er maður kominn heim :) ég er kominn með nýtt númer það er: 849-8273 call me folks ;) see ya ;)
13. júní 2006 klukkan 11:40
Viltu vita leyndarmál, sem ég geymi í minni sál????
Þið fáið að vita það fljótlega :)
Bjó til Myspace..hendi tengli inn núna..
Sumarið er sko komið í DK..
30°hiti í gær
20°hiti núna og klukkan er 08:39..haha..hvernig er veðrir á íslandinu..rigning eins og vanalega eða? hehe :p :D
Men jeg smutter nu..saa vi ses senere..hej hej :)
22. maí 2006 klukkan 23:15
Já þessi helgi var bara geggjuð =) Á föstudeginum skelltum við (nokkrir krakkar frá skólanum) til Odense á djammið og gistum á hóteli =) byrjuðum á því að borga hótelið og svo var stefnan tekin á bæinn :) Fórum í svona skemmtistaða-moll sem heitir Arkaden =) Ég og Muse fórum á Zebra bar sem er klikkaður staður með geðveikri músík..og ekki nóg með það...þú borgar 700kr.ísl og þá máttu drekka eins mikinn bjór og þú vilt í 2.tíma og ef þú borgar 1700kr.ísl þá máttu drekka hvað sem er á barnum í 2.tíma..og ég var sko í dansgírnum allan tímann...dansaði eins og vitleysingur...svo kl.3 skelltum við okkur bara á hótelið..og fórum að sofa eftir æðislegt kvöld :) svo var vaknað á laugardagsmorgninum um 11-leytið og skellt sér í morgunmat..og svo tókum við rútuna til Vissenbjerg næsti bær við skólann..og löbbuðum þaðan :) Svo á laugardaginn var Eurovision-party hérna í skólanum..og ég var mjög hneykslaður á því að Finnarnir tóku þetta..átti ekki til orð..ég hélt með Úkraínu og Rússlandi..og Rússland var í öðru sæti sem er frábært :) Svo var sunnudagurinn leti dagur..og í nótt veiktist ég..fékk e-ja gubbupest :( og var hálf-slappur í allan dag...en vona að ég verði betri á morgun :) Svo er ég búinn að plana næstu helgi..Fer til Köben að hitta hana Heiðu skvízu :) og ætlum við að gera e-ð skemmtilegt..Það er að segja ef maður á e-n pening..eyddi svo miklu núna um helgina :( en jæja...
Þangað til næst..óli is out =)
19. maí 2006 klukkan 13:01
Já föstudagur í dag..sorgardagur fyrir alla Íslendinga því hún Silvía okkar komst ekki áfram..ég fékk bara sjokk þegar hún dróg upp seinasta umslagið og sagði Rúmenia
Þetta var alveg geggjað hjá henni fannst mér..en já svona verður þetta bara að vera...ættum að senda óperu á næsta ári í þetta..fyrst að finnarnir komust áfram með e-ð dauðarokk :S alveg glatað...já svo er föstudagur í dag og ekkert spes veður hérna í danmörkunni...það er enginn skóli í dag..þannig að ég er að hugsa um að leggja mig aftur bara
kúra til svona 12..já svo er Eurovision á morgun..en það verður ekkert gaman að horfa fyrst að Ísland komst ekki áfram..er hálf fúll yfir þessu..en jess ætla ekki að hafa þetta blogg lengra..endilega kommentið og segið ykkar skoðun á þessu..
Love you, óli freyr
29. apríl 2006 klukkan 12:42
Já ég er á leiðinni til Tyrklands eftir nokkra klukkutíma...erum skólinn að fara í partýferð 30° hiti =) ó mæ god ég er svo spenntur SHOPPING, SUN and COCKTEILS =)
ÍHAAAAAAAAAA 
Þetta verður æði :):):):) crazy crazyyy..
Blogga örugglega ekkert þar en við sjáum til :):)
25. apríl 2006 klukkan 20:28
24. apríl 2006 klukkan 17:49
21. apríl 2006 klukkan 02:18
Já það var æðislegt á Íslandi :D Skemmti mér æðislega vel bara :) Þegar við komum til DK þá skelltum við okkur bara beint til Amöndu pöndu og þar tóku Íslendingarnir á móti okkur með bjór :D Og flugferðin gekk æðislega vel..:D það var svo gott veður að það var bara enginn hristingur :) og ég fékk mér nokkra bjóra og ég náði að sofna í fyrsta skipti á ævi minni í flugvél :D haha..svo um 5 leytið ákváðum við Íslendingarnir að skella okkur í tívolí-ið í köben sem var bara geðveikt!! keyptum okkur svona Turpas..veit ekki alveg hvernig maður segir það á íslensku hehe..maður er orðin svo sleipur í dönskunni ;) svo eftir 4 klukkutíma í tívolíinu fórum við á Hereford og fengum okkur dýrindis nautasteikur sem kostuðu morð fjár :S og maður eyddi nú helví** miklu í köben..:S þannig að maður er nú svona hálf peninga-laus :( en það þýðir nú ekkert að velta sér upp úr því...svo gistum við á hóteli..það var allt voða grand hjá okkur skoh..lifðum eins og ríkir lögfræðingar :D haha..mæli eindregið með þessu hóteli en það heitir..Hotel løven :D geggjað fínt hótel..alls ekki of dýrt og nálægt miðbænum í þokkabót :) svo daginn eftir vöknuðum við ferskir og fórum til Amöndu og sóttum dótið okkar :D og ég dreif mig bara á lestarstöðina aleinn..:S það var nú ekkert voða gaman...en strákarnir fóru á Kastrup að kveðja Boliviu-teamið...en ég var með svo þunga tösku að ég var ekki að meika að dröslast með hana útum allt :S en það var æðislegt að koma í skólann aftur..krakkarnir stukku á mig og kysstu mig og knúsuðu :* elska þau svo mikið og auðvitað ykkur öll sem eru á klakanum líka..en ég ætla ekki að hafa þetta lengra..
P.s. það væri nú alveg fínt ef þið kvittuðuð fyrir komu ykkar og skrifuðuð kanski athugasemdir..:)
love you all, kveðja. Óli Danmerkurbúi ;)